9.12.2008 | 02:45
Ungliðar láta flokksforystuna heyra það
Stjórnmálamenn sem geta ekki viðurkennt mistök sín er ekki treystandi, segja stjórnendur framtíðarinnar. Merkilegar umræður áttu sér stað hjá formönnum ungliðahreyfinga flokkanna í þættinum Mér finnst. Þar kom kom skýrt fram ákall nýrra tíma um mennsku og einlægni stjórnmálamanna. Það vakti líka athygli hvað ungliðarnir áttu auðvelt með að sammælast og finna lausnir á vanda þjóðarinnar. Við eigum von á góðu þegar þessar þroskuðu, vel gefnu og menntuðu konur taka við stjórn landsins.
Guðrún Birna le Sage de Fontenay,
formaður Hallveigar, félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.
Fanney Birna Jónsdóttir,formaður Heimdallar.
Bryndís Gunnlaugsdóttir,
formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
Snærós Sindradóttir,
fulltrúi Ungra vinstri grænna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2008 | 01:32
Allt soldið sirka og sjarmerandi á ÍNN
Það vantaði bara 10 mínútur framan á þáttinn MÉR FINNST í kvöld þar sem merkilegir endurfundir áttu sér stað. Gestir þáttarins voru Kolfinna og fastakonurnar - Björk Jakobs, Guðrún Bergmanna og Sigríður Klingengberg - við vissum að Ellý yrði sein, var að lesa fréttir á Bylgjunni.
Mættar uppá ÍNN uppúr fjögur - uppdressaðar og sminkaðar - komnar í settið klukkan fimm - röðuðum okkur í kringum borðið í myndverinu - tókumst aðeins á um staðsetningu eins og venjulega - settum upp hljóðnemana og gerðum hljóðprufur.
Síðan var talið í. Ég kynnti þáttinn - þessa einstöku endurfundi - rann til með olnbogann á borðinu og var sökuð um ölvun - allt látið flakka og ekkert klippt. Konur að velta fyrir sér stöðunni - Ísland á heljarþröm - Sigga hvetur til jákvæðni og segist biðja fyrir ríksstjórninni - Kolfinna vill mótmæli og uppgjör - Björk nýkomin frá Rússlandi, himinlifandi yfir Íslandi - aðrar tilbúnar að flytja úr landi. Konur lýsa líðan sinni - ein komin á atvinnuleysisbætur, önnur að hugleiða gjaldþrot.
Þátturinn á enda og við flytjum okkur fram í eldhús. Viðar alsherjar sér um afganginn. Þátturinn að fara í loftið þegar í ljós kemur að það vantar framan á hann - fyrsti hlutinn aldrei tekinn upp. Æææ!!! Útsendingin byrjar í miðju kafi: Ellý er mætt ... og við vorum einmitt að ræða .... - óborganlegar upphafsmínútur glataðar að eilífu.
Eftir smá ergelsi og tuð er ekki um annað að ræða en að brosa. Viðar alsherjar segir fyrirgefðu - hann hlýtur að vera æðrulausasti maður á Íslandi, er í 10 hlutverkum, sér um lýsingu, hljóð, upptökur, klippingu, súb-texta, gerir lógó og stef, renderar þættina, sér um útsendingu. Stundum blikka ljósin, hljóðið getur verið til vandræða, freimingar eru frjálslegar og það getur vantað framan á þætti. En þetta er hluti af sjarmanum - einlægni og einfaldleiki - það sem gerist gerist bara, ekkert leikrit í gangi, engar brellur, allt orginal, nógur tími, engin ritskoðun og allir fá að heyrast.
Þannig er ÍNN - soldið sirka og sjamerandi.
Ásdís Olsen
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.11.2008 | 22:52
Verðtryggðu húsnæðislánin munu setja millistéttina á hausinn
Þetta kom fram í þættinum Mér finnst á sjónvarpsstöðinni ÍNN í kvöld.
Íslenska millistéttin - vel launað fólk sem borgar skatta og heldur í raun kerfinu uppi - er að gefast upp á greiðslubyrði húsnæðislána - verðtryggingin er að setja fólk á hausinn og fólk er að velja gjaldþrot frekar en að eyða öllum laununum sínum í að greiða afborgarnir af húseignum sem það mun hvort sem aldrei eignast. Þúsundir heimila verða eign bankanna á næstunni og vel menntað fólk sér framtíð sinni best borgið í útlöndum. Þetta kom fram í þeim dæmisögum sem voru til umræðu í þættinum og í máli Ingólfs H. Ingólfssonar fjármálaráðgjafa.
Það eina sem gæti komið til bjargar er að hagræða verðtryggingu lána, t.d. með því að festa vextina við 4% - leggur Ingólfur til - en engar slíkar aðgerðir eru fyrirhugaðar samkvæmt Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, hagfræðingi Félags- og tryggingamálaráðuneytisins, sem vinnur að nýju frumvarpi um aðgerðir "til að koma til móts við lántakendur vegna verðtryggingar".
Þessar sögur voru til umræðu í þættinum, en þær eiga við um mörgþúsund íslensk heimili:
Saga 1:
Ungt fólk með 4 ára barn, í vinnu og að ljúka meistaranámi, keypti 25 milljón króna eign fyrir 2 árum þau átti 7.5 milljónir í íbúðinni, tóku Íbúðalánasjóðs lán upp á 17.5, sem nú er komið í 21 milljón. Ef verðbólgan verður 20%-30% eins og spáð er verður lánið komið vel yfir 25 milljónir eftir ár. Hér eru engin gengislán, engin bílalán, ekkert óábyrgt sukk. Eftir 1 til 2 ára verður eignifjárstaðan orðin neikvæð um 10 milljónir þótt greitt sé af láninu og afborganir séu himinháar, eignast þau ekki neitt, heldur festast enn frekar í skuldanetinu. Þau velja að borga ekki afborganir, sjá hvort sem er framá gjaldþrot ætla bara að skila lyklinum til Íbúðarlánasjóðs og flytja til útlanda.
Saga 2:
Miðaldra hjón með 3 börn á heimilinu, í góðri og öruggri vinnu, keyptu sér einbýlishús á 50 milljónir, áttu 20 milljónir og tóku 30 milljón króna húsnæðislán, sem er komið í 47 millur í dag. Greiðslubyrðin var140.000 á mánuði er nú 260 þúsund. Þau áttu 20 milljónir í húsinu fyrir nokkrum vikum en ekkert í dag. Þau sitja uppi með hús sem ekki er hægt að selja enda stæði húsið ekki undir sér hvort sem er. Þau eru í skuldafangelsi, þurfa að eyða megninu af laununum sínum í afborganir af húsi sem þau koma aldrei til með að eignast nokkuð í. Þau velja að fara í gjaldþrot og leigja sér húsnæði fyrir helmingi lægrii upphæð á mánuði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.11.2008 | 12:07
Konur eru tilbúnar til að taka völdin
Neyðarstjórn kvenna og Fésbókin eru til umræðu í Mér finnst þessa vikuna.
Nýr baráttuandi gerir vart við sig á Fésbókinni þessa dagana - enda er hér um að ræða ótrúlega öflugan lýðræðisvettvang - þar sem fólk tengist, hópar og tengslabandalög verða til og hluti gerast hratt. Neyðarstjórn kvenna komin með 1600 meðlimi á nokkrum klukkutímum og hópar eins og Hættum að borga telja 15000 meðlimi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.10.2008 | 00:03
Nýr þáttur - brautryðjendur í opinberri umræðu um kynlíf á Íslandi
Nú eru aftur hafnar upptökur á Mér finnst ... og í dag var Ásdís með áhugaverða umræðu um kynlíf og þróun þeirrar umræðu hér á landi frá því við höfðum bara Samúel og Rauðu ástarsögurnar. Gestir þáttarins eru konurnar sem ruddu brautina í umræðunni um kynlíf og kynheilbrigði hér á landi, þær Halldóra Bjarnadóttir, Ragnheiður Eiríksdóttir og Ágústa Jóhannsdóttir. Óhætt er að segja að ýmislegt sé látið flakka á meðal þessara kvenna sem hafa í rætt um kynlíf blyggðunarlaust í áraraðir. M.a. rifjar Ragheiður upp fræga sýningu á píkumyndum á hátíðarsýningu á stóra sviði Borgarleikhússins í tengslum við leikritið Píkusögur - hún dró fram myndabókina góðu og deildi með áhorfendum píkumyndum og sögum af þeirri uppákomu. Konurnar voru einnig bjartsýnar á að kreppan myndi færa okkur ný tækifæri og bættar áherslur í samskiptum.
Kolfinna og Ásdís skiptast nú á að sjá um Mér finnst en þeir eru á dagskrá á föstudagskvöldum í sjónvarpinu á rás 20 og eru einnig aðgengilegir á netinu á inntv.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2008 | 20:46
Neita að fjalla um sleipiefni og smokka í sjónvarpinu
Þessi fréttar á visi.is þarfnast útskýringar ... ekkert að því að fjalla um sleipiefni og smokka í sjónvarpinu ... en við stallsystur viljum ekki blanda saman auglýsingum og heiðarlegri umræðu.
http://visir.is/article/20080614/LIFID01/619829032
Neita að fjalla um sleipiefni og smokka í sjónvarpinu
Það var auglýsingasölukonan Fía, sem var að vinna fyrir Ingva Hrafn, sem barðist fyrir því að við værum með smokka og sleipiefni í þættinum en ég tók það ekki í mál," svarar Ásdís Olsen sem hefur umsjá með kvennaþættinum Mér finnst sem sýndur er á sjónvarpsstöð Ingva Hrafns ÍNN þegar Vísir spyr hvort
hún og meðstjórnandi hennar Kolfinna Baldvinsdóttir ætli að stíga skrefið enn lengra í hispurslausri umfjöllun um forvitnileg málefni eins og kynlíf en þær stöllur segjast láta allt flakka ef marka má myndbandið hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.6.2008 | 12:09
Nýr þáttur ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2008 | 15:08
Kynlífskönnu til umræðu
Fræg kynlífskönnun ... sem olli miklu fréttafári og setti Kvenréttindafélag Íslands á annan endann á sínum tíma ... var til umfjöllunar í Mér finnst á föstudaginn og til frekari umræðu á visi.is - sjá hér http://www.visir.is/article/20080602/LIFID01/159400884
---- Sagan er þessi - Ásdís Olsen var ritstjóri 19. júní - sem er ársrit Kvenréttindafélags Íslands - sem, ásamt stórhuga ritstjórn - réðst í heilmikla rannsókn á kynlífi kvenna --- sem hafði ekki verið gert áður - að spyrja íslenskar konur hvað þær væru að fá útúr kynlífi - hvað þeim finnst og hvað þær vilja. Rannsóknarfyrirtæki var fengið til að framkvæma rannsóknina - spurningalisti var sendur til 800 kvenna ... en svo óheppilega vildi til að formaður KRFÍ lenti fyrir tilviljun í úrtakinu og brást illa við ... svo þessi mjög svo leynilega rannsókn komst í frétti og varð á allra vitorði - þar sem tölvunefnd og stjórn KRFÍ og Jón Steinar lögmaður -komu m.a. við sögu og að endingu skáru dómstólar landsins úr um lögmæti könnunarinnar og ólögmæti uppsagnar ritsjórans.
Ritsjóri og ritstjórn gáfu tímartitið út í eigin nafni og kölluðu það Sterkar saman ... þar sem niðurstöður rannsóknarinnar frægu voru gerðar opinberar ... og ýmislegt fróðlegt kom í ljós ...
þegar spurt var ... hefuru haldið framhjá? sögðu 23% ísl kvenna jáEn einnig var spurt ...
- hvort finnst þér betra að vera með karlmanni með stóran eða lítinn lim?
-færðu kynferðislega fullnægingu?
-hve gömul varstu við fyrstu samfarir?
.... svo dæmi séu tekin.
Upplýsingarnar voru krosskeyrðar og niðurstöðurnar ræddar og túlkaðar með aðstoð kynlífsfræðings.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Húrra húrra - 55 þættir komnir í loftið .... og við fögnum því á föstudaginn - og höldum partý fyrir alla þá sem hafa komið við sögu þáttanna!!!!
Mæting kl. 16:00 í stúdíó .... og við byrjum ballið á mjög frjálslegri upptöku á föstudagsþættinum!!! Síðan verður gleðin við völd og veitingar í boði hússi
Hlökkum til að sjáykkur - með kveðju, Ásdís og Kolfinna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)